Hvort sem tilefnið er trúlofun, hjónavígsla eða einfaldlega ástin þá fara myndatökurnar alltaf fram á vettvangi, oftast úti við á fallegum stað sem parið hefur í huga eða tengir sérstaklega við.
Ef um athöfn er að ræða er algengast að fólk velji að hafa myndatökuna milli athafnar og veislu og þá er gott að reikna með góðum tíma ef hægt er til að forðast stress. Pör hafa líka hitt mig fyrir athöfn í myndatöku og m.a.s. kom eitt par daginn fyrir athöfn í fullkomnum rólegheitum, svo möguleikarnir eru ýmsir.
Athafnir formlegar og óformlegar eru eins mismundandi og manneskjurnar, og við skipuleggjum myndatökuna tímanlega saman út frá veðrum, vindum og ólíkum aðstæðum hverju sinni.
Skrunaðu niður til að skoða sýnishorn úr myndatökum og verð ↓
Hafðu samband til að bóka myndatökuna eða til að fá frekari upplýsingar
Dæmi um mismunandi para- og hjónamyndatökur
Smelltu á myndirnar og skoðaðu dæmi um myndatökur síðustu ára:
G&D – brúðarmyndataka í Mosfellsdal
S&V – Brúðarmyndataka í Elliðaárdal
D&G – Brúðkaupsmyndataka á Hótel Borealis
V&A brúðkaupsmyndataka í Sarasota
S&S – brúðkaupsmyndataka á Árbæjarsafni
H&Ó – brúðkaupsmyndataka í Papey
Brúðkaupsmyndataka í Hvalfirði
A&D – Brúðkaupsmyndataka á Reykjanesi
Verðskrá – Para- og hjónamyndatökur
Hjónavígslur eru alls konar og myndatökurnar fjölbreyttar eftir því, verðskráin hér að neðan gefur verðhugmynd en hikið ekki við að hafa samband ef þið eruð með spurningar eða aðrar hugmyndir um t.d. lengd myndatöku eða skil á myndum og ég gef ykkur tilboð með það í huga.
Myndataka
ISK 90.000
- Allt að 2 klst.
- 25-35 myndir í vefgallerí til niðurhals í prentupplausn
Myndataka & athöfn
ISK 135.000
- Allt að 4 klst.
- 60-80 myndir í vefgallerí til niðurhals í prentupplausn
Myndataka, athöfn & veisla
ISK 220.000
- Allt að 6 klst.
- 120-140 myndir í vefgallerí til niðurhals í prentupplausn
Undirbúningur, myndataka, athöfn & veisla
ISK 265.000
- Allt að 8 klst.
- 160-200 myndir í vefgallerí til niðurhals í prentupplausn
Fyrir myndatökur sem fara fram utan höfuðborgarsvæðisins leggst á ferðagjald sem er samið um hverju sinni.
Hægt er að greiða með millifærslu. Sjálfsagt er að skipta greiðslum.