
Ég hef ákveðið að gera n.k. MÁD verkefni (MÁD=Mynd Á Dag). Ég ætla að mynda og skrifa stutta línu um það sem ég er þakklát fyrir og verður á vegi mínum við hversdaglegar athafnir. Það er augljóslega til að minna sig á allt sem að maður hefur og nýtur í stað þess að einblína á það sem manni finnst manni “vanta”. En líka af því að ég hef fundið við fyrri MÁD verkefni að þau eru einstaklega lærdómsrík og gefandi. Ég ætla reyndar að gefa mér eitt ár til að klára 100 dagana, enda annasamur tími framundan. Í þetta sinn hef ég alveg opið hvernig stíllinn verður, en þetta á samt að vera frekar hraðsoðið.
Ég bæti myndunum við hér í póstinn smám saman. Nýjustu myndirnar birtast efst.
Verkefnið er algerlega innblásið af endalaust hrífandi 365 daga “Grateful” verkefni Hailey Bartholomew. Ég mæli með að skoða það á vefsíðunni hennar, en þar segir hún frá því, birtir nokkrar blaðagreinar um það og linkar á myndirnar sjálfar. Hún tók sitt verkefni á Polaroid en ég verð að láta stafrænu tæknina duga þó hennar aðferð hafi óneitanlega verið meira sjarmerandi.
I’ve decided to start a new PAD project (PAD = Photo A Day). I’m going to photograph and write one short line about what I’m grateful for in my everyday life. The purpose is obviously to be reminded of everything I have, instead of thinking of what I “want” or “need”. But also because of the simple fact that I’ve found through former PAD projects that they are enormously educational. I am actually going to take one year to finish the 100 days though, because there will be a lot to do this winter.
I’ll add the images to this post one by one, the newest images at the top.
This project is inspired by Hailey Bartholomew’s 365 PAD project “Grateful”. That project is so beautiful, and I recommend getting to know it on her website. She explains it there, publishes some Magazine features about it, and links to the images. She shot her project entirely with a Polaroid, but I’ll have to let my SLR do this time, but must admit I find her way of doing it so much more charmant.




Frábært – verður gaman að fylgjast með!
Ég virðist ekki geta hætt. Þig langar ekkert að byrja á nýju PAD Tommi?