
Vorum að koma úr fríi á norðausturlandi. Alltaf er jafn gott að koma á gömlu heimaslóðirnar. Við dvöldumst í viku að Illugastöðum í Fnjóskadal. Fórum með vinum okkar þýskfrönsku pari sem kom að heimsækja okkur, Janet og Julien og fórum því víða svo þau sæju nú sem flest. Heimsóttum Mývatnssvæðið, Goðafoss og Dettifoss (það er gott að fara eigi að laga veginn, leiðinda færð þarna uppeftir), Húsavík, Hrísey og Eyfjafjarðarsvæðið. Fórum í heimabakað brauð hjá Kollu systur á Hauganesi og Haddú sagði J&J sögur af Goðafossi og fleiri stöðum. Glói var sannarlega sæll í ferðinni, m.a. vegna tíðra sundferða og mikils ísáts og hápunkturinn fyrir hann var sennilega þegar við heimsóttum það sem hann kallaði “dýragarðinn” hjá frændum okkar á Kristnesi þar sem faunan er orðin annsi óvenjuleg og fjölbreytt. Það var margt fleira og fleiri sem við hefðum viljað heimsækja en tíminn var búinn. Þetta var svo góð ferð að við förum hugsanlega aftur í haust ef við komum því við.
Svo keyrðum við Kjöl heim, heimsóttum Gullfoss og Geysi og rétt kíktum seint um kvöld á Almannagjá og Öxarárfoss. Það hafði verið þvílík blíða, hiti og sól allan tímann á norðausturlandi og þarna um kvöldið á leið heim var örugglega um 15 stig. Eins og sumarkvöld á meginlandinu. Janet og Julien fengu svo sannarlega skrítna mynd af veðurfarinu hér.
Ég tók lítið af myndum, en þó eitthvað og læt hér nokkrar fylgja með.
Þar sem ég er komin heim mun ég snúa mér að verkefnum sem bíða á næstu dögum.
We just came from our vacation in the northeast part of Iceland. It is always wonderful to visit the old homeplace.There we stayed for a week at Illugastaðir in Fnjóskadal. We went there with our good friends Janet and Julien, so we traveled widely so that they could see as much as possible. We visited the Mývatn area, Goðafoss and Dettifoss (the road is happily soon going to be repaired there), Húsavík, Hrísey and Eyjafjörður. We got homemade bread by my sister Kolla in Hauganes and her husband Haddú told us stories from the area. Glói was so happy on the whole jorney, he loved the frequent trips we took to the swimmingpool and iceshop and the highpoint of the journey for him was probably the “zoo” by our relatives in Kristnes as he called it. But the fauna there has become both versatile and unusual for Iceland. There were many other things we would have loved to do, but it will wait untill next time – maybe in the fall if we’ll find the time.
On the way home we drove over Kjölur, visited Gullfoss and Geysir and took a peek at Öxarárfoss late in the evening. It was such amazing weather we had our whole trip, sun and warmth, around 20 degrees celsius. That evening as we were heading home we even had around 15 degrees, so we were wearing T-shirts as on a summernight on the continent. Janet and Julien really got lucky with the weather.
I shot unusually little, but here are a few images following.
Now that I am home I will be attending to waiting projects very soon.



