0

Aldarblik – Geisladiskahulstur | CD Album

131514

Aldarblik er geisladiskur sem ég var að fá í hendurnar. Hann er gefinn út í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðar, en hátíðarhöldin stóðu sem hæst núna um helgina eins og flestir vita. Það eru ungir hafnfirðingar sem flytja þar ástsæla íslenska söngva í nýjum útsetningum Jóns Guðmundssonar og Sigurðs Rúnars Jónssonar. Það eru þau Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Ágúst Ólafsson barítón og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari sem eru þar í aðalhlutverkum. Aðrir flytjendur eru Birgir Bragason á kontrabassa, Helga Björg Arnardóttir á klarinettu og Hjörleifur Valsson á fiðlu. Svo syngur kór Flensborgarskóla í nokkrum laganna undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg.

Ég hannaði allt útlit disksins og tók ljósmyndirnar. Gamlar ljósmyndir sem sýna mannlíf úr Hafnarfirði á síðustu öld eru úr einkasafni. Diskinum verður bráðlega dreift af 12Tónum, þangað til má nálgast hann í Hafnarborg.
I just got the CD Aldarblik in my hands. I’ll quote the backside of the CD: “Aldarblik has been released to celebrate the one hundredth anniversary of the town of Hafnarfjörður. New arrangements of many of the nation’s best loved songs appear here, …”.

Except for the old photographs of Hafnarfjörður, wich come from a private collection, I shot all photos and designed the CD.

060708

Skylt efni | Related posts:

No comments so far!

Leave a Comment